Saga gistiheimilisins
Gistheimilið á Borgabraut 4 var byggt árið 1948 af bræðrunum Gústa og Guðmundi Guðmundssonum. Húsið var upprunalega einungis 2 hæðir með kjallara og fjósi. Seinna meir breyttu þáverandi eigendur húsinu, Nanna og Hrólfur, og stækkuðu við það með því að lyfta upp þakinu og gera 3 hæðina. Síðar kom svo viðbyggingu við 1 hæðina sem nýtist í dag sem gestamóttaka og morgunverðarsalur.
Nanna Magnúsdóttr og Hrólfur Guðmundsson sáu um rekstur gistiheimilisins og bjuggu í húsinu í rúmlega 20 ár. Árið 2008 tók Magnús Bragason, sonur Nönnu, við rekstrinum og sá um gistiheimilið í 2 ár.
|